04.10.2008 09:16:02 / runaringi

Kuala Lumpur

Sælt verið fólkið.

Hingað er ég þá kominn og búinn að vera síðan á mánudag. Allt of lítið að gera en MASKarko aflýstu ansi mikið af flugum í byrjun október vegna ýmisa hátíða í Kína og Malasíu.

Hótelið er fínt, með aðgang að góðu gymi, sundlaug, tennisvöllum ásamt mjög frægum golfvelli sem fróðir menn segja besta golfvöllinn í Asíu og notaður í mótaröð atvinnukylfinga.

Veðrið er svona Tropical, meðalhiti yfir árið er 31-32°C og núna er regntímabilið þannig að það hellirignir suma daga með miklum þrumum og eldingum. Íbúarnir eru mjög kurteisir og aðminnilegir og nánast allir kunna ensku sem er óneitanlega þægilegt.

Eins og ástandið er heima núna er manni skapi næst að skjótast heim, pakka öllu niður og koma með stelpurnar hingað út, en það þarf að bíða og sjá hvernig þetta fer.

Annars ekki mikið annað í fréttum, smelli annari færslu þegar ég er búinn að fljúga fyrsta flugið hérna.

Baráttu kveðjur heim til Íslands. 8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 22:20:14 / runaringi

Jörð svarar loksins bloggi...

Jæja gott fólk, þá hef ég loksins ákveðið að rita niður nokkur orð.

Eins og kannski flestir vita þá er ég núna staddur í Abu Dhabi og að öllu óbreyttu ætti ég að vera hérna fram á mánudag í næstu viku, en þá er ferðinni heitið til Kuala Lumpur.

Það er ekki eins þægilegt, skulum við segja, að vera í Abu núna eins og aðra mánuði ársins því núna stendur yfir Ramada. Þá fasta allir arabar frá sólarupprás til sólarlags og bannað samkvæmt lögum að sjást á almannafæri með mat og drykk, sama hvort þú ert múslimatrúar eða ekki. Las í blöðunum að par í Dubai hafi verið handtekið fyrir að drekka ávaxtasafa á almannafæri um hábjartan dag, einhver sá þau og hringdi á lögguna. Þau voru handtekin og sektuð um 1000 Dirhams ca 25 þús kr, en hámarksrefsing er mánaðar fangelsi og 2000 Dirhams í sekt. Pælið í rugli...

En á meðan Ramadan er þá er voða mikið lokað yfir daginn og svo á kvöldin iðar allt af lífi eftir sólsetur þar sem allir drífa í að fá sér að éta og drekka. Þetta er nú meiri vitleysan..

Svo má ég til með að segja aðeins frá steggjun minni en fyrir þá örfáu sem ekki vita þá er brúðkaup okkar sett 8. nóvember nk.

Ég var vakinn með vatni og smá hveiti á laugardaginn fyrir rúmri viku, settur í bleyju og skilað á Boot Camp æfingu efir að hafa fengið 2 bjóra í morgunmat. Ekki entist ég lengi þar og eftir ca 10-15 mín var ég búinn að ofkeyra mig og skilaði "morgunmatnum" snyrtilega á stéttina í æfingaportinu...

Næst var haldið í Kringluna og náði ég að vappa þarna um furðu lengi á bleyjunni einni saman áður en öryggisverðir sögðu mér að fara í buxur. Fengum okkur að borða yfir Man - Liverpool leiknum sem endaði illa.

Hver þarf óvini þegar maður á svona vini??

Eftir matinn var ég sendur í vaxmeðferð þar sem hálfur sköflungurinn var tekinn, og svæðin í kringum geirvörturnar og naflan voru einnig tekinn. Djö... Ansk... var þetta helv.. sárt:^) Til að kóróna þetta allt þá stakk snyrtifræðingurinn uppá að spreyja brúnku á hausinn á mér líka, þannig að ég kom út eins og illa tanaður hnakki...

Enn og aftur spyr ég, hver þarf óvini þegar maður á svona vini??

Næst var haldið að fjörunni nálægt bryggjuhverfinu í Garðabæ. Þar voru fyrir mættir drengir með Jet Ski og var ég settur í "þurrgalla" og björgunarvesti ásamt kút um hálsin á mér. Nú átti að draga mig á Jet Ski í spotta með bundið fyrir augun!! Eftir 2 tilraunir til að draga mig var þessu hætt enda náði ég engan vegin andanum um leið og gaurinn fór af stað þar sem sjór jóst yfir hausin á mér. Þá var ég settur aftaná og gaurinn náði að henda mér af 3 skipti sem var bara gaman. Þökk sé sjóbaðinu þá fór nánast öll brúnkan 8)

Síðan var haldið til Hveragerðis þar sem ég fékk þetta líka fína bað frá slökkviliðinu eftir allt sjóvolkið, og auðvita á bleyjunni. Hann drakk ansi vel í sig vatnið og var ábyggilega um 5-6 kg eftir baðið.

Á milli Hveragerðis og Selfoss var mér svo hent út og skilinn eftir með spjald sem á stóð "Ég er steggur og vantar far til Selfoss" Ekki þurfti ég að bíða nema í nokkrar mín þangað til að góður maður stoppaði og gaf mér far.

Þetta endaði svo í bústað í Borg í Grímsnesi þar sem við elduðum hamborgara og drukkum áfengi fram á nótt.

Ég hef nú alltaf bara ætlað að gifta mig einu sinni, en eftir þessa meðferð þá er það undirstrikað...  :d

Þangað til næst....

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 11:52:14 / runaringi

Brazzaville, Rupublic Of The Congo

Þá er ég staddur í svörtustu Afríku þar sem lítið sést af hvítum mönnum. Hingað kom ég á miðvikudagsmorgun frá París eftir millilendingu í Bangui sem er í Center African Republic sem er í um 1:30 mín flug frá Brazzaville. Það var mjög forvitnilegt að lenda í Brazza því það var fullt af fólki að labba í kringum flugbrautina eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ekkert verið að eyða í einhvern óþarfa eins og girðingar :lol:

Svo var smá bið eftir að okkur var skutlað uppá hótel þannig að við biðum fyrir utan flugstöðina og þar gerðum við ekkert annað en að bægja frá okkur tilboðum í að bursta skóna okkar, selja okkur skafmiða og litla hengilása á töskur. Skipti engu máli hvort við sögðum nei, þeir komu bara aftur eftir 2-3 mín.

Áður en við fórum vorum við búnir að heyra miður góðar sögur af hótelinu sem aðrir flugmenn höfðu verið á hérna í Brazza. Þar voru þeir að keppast við maura um mat á hlaðborðinu og kakkalakkar skríðandi undir borðunum og svona skemmtilegt. En við fengum annað hótel og ég get ekki sagt annað en það sé bara ljómandi gott, ekki séð eina einustu pöddu. Aðstaðan er líka mjög góð og alveg til fyrirmyndar. Þannig að ef þið skylduð villast til Brazzaville á ykkar lífsleið þá mæli ég með Olympic Palace ;)

Svo má ég til með að minnast á fríið sem ég átti heima, það var alveg frábært og endurnærandi. Hitti skemmtilega á að Pete félagi minn kom í viku heimsókn til Íslands þar sem við gerðum marga skemmtilega hluti saman. Daginn eftir að ég kom heim fór ég, Hrafnhildur, Pete og Gummi á skíði í Bláfjöllum. Ég hafði ekki farið á skíði í um 8 ár en Pete hafði aldrei farið á skíðið þannig að þetta var mjög spennandi. Fyrstu skiptin í toglyftuna voru priceless þegar hann kipptist af stað og hentist í jörðina :lol: En annars var ég mikið að hjálpa og kenna Hrafnhildi á skíði og það leið ekki á löngu áður en hún vildi gera þetta allt saman ein enda var hún mjög fljót að læra þetta.


Á valentínusardaginn byrjaði dagurinn á frekar hommalegan hátt þar sem ég Gummi og Pete fórum í Bláa lónið og skyldum konurnar eftir í vinnunni. En um kvöldið dekraði ég við Evu og eldaði fyrir hana góðan mat ásamt afbragðs eftirrétti.
Á föstudagskvöldinu buðum við svo Pete, Gumma og Telmu í mat til okkar. Planið var að fá sér aðeins í glas og kíkja svo í bæinn. Spiluðum musík og á gítar smá sungið og trallað og bara ágætis stemmning. En rúmlega eitt þá var bankað á dyrnar og lögreglan mætt á svæðið. Einhver ekki sáttur við tónlistina og hringdi því á lögregluna, en það kom ekki að sök því þetta var pabbi vinkonu Evu og þau fóru bara að spjalla eins og mestu mátar. Pete fannst þetta stórfurðulegt þar sem hann hafði aldrei verið í "partíi" þar sem lögreglan kemur og hvað þá að húsráðandi þekkir viðkomandi. Honum langaði að taka myndir af lögguni sem var við það að fara en Eva náði að stoppa hana og maðurinn tók vel í myndatöku sem stillti sér upp við bílinn.

Svo átti ég að fara út til Parísar föstudaginn sl. en átti ekki flug fyrr en á þriðjudagskvöldinu þannig að ég athugaði hvort ég gæti farið út á mánudeginum sem var auðsótt mál og fékk því eina helgi í viðbót með fjölskyldunni sem var alveg æðislegt.

Svo styttist meira og meira í að þær mæðgur komi til Abu Dhabi og þá verður mikið fjör og mikið gaman :haha:

Bið að heilsa að sinni og nú er ég búinn að setja inn nýjar myndir á www.fotki.com/runaringi27  reyndar ekki neinar myndir frá Brazzaville.

Góðar Stundir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 15:55:51 / runaringi

Indland

Jú sæl veriði.

Þá bættist eitt landið enn í listan yfir lönd sem ég hef flogið til og eru þau nú orðin 8 talsins. Þau eru: Spánn, Frakkland, Ítalía, Lýbía, Sadi Arabía, Mali, Sameinuðu Furstadæmin og Indland.

Indland er mjög grænt og frjósamt land. Mikið af ökrum og trjám. Var alveg ágætis upplifun að koma þarna þó maður hafi varla farið út úr vélinni. Svo er alltaf gaman að hlusta á indverjan tala ensku.... :lol:

Þá er það komið á hreint, Eva og Hrafnhildur koma til Abu Dhabi morguninn 15. mars og verða hér í um 10 daga. Mikið hlakkar mig til að fá þær hingað og ætlum við að gera margt skemmtilegt saman. Stefnan er að leigja bíl og fara til Al Ain sem er furstadæmið hérna við hliðina og þar er víst einhver dýragarður. Svo er náttúrulega skyldumæting til Dubai og kíkja á skíðabrekkuna og verðandi hæstu byggingu heims.

Svo er líka nóg af "mall-um" til að versla í og líka gott að fara á ströndina í sólbað. Okkur á sannarlega ekki eftir að leiðast um páskana :D

Annars bið ég kærlega að heilsa ykkur og ástar og saknaðarkveðjur til Evu og Hrafnhildar. Kiss Kiss

 Rúnar Ingi

P.S.

Því miður get ég ekki sett inn neinar myndir eins og er vegna tæknilegra örðuleika en um leið og það lagast mun ég bæta úr því.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 16:02:54 / runaringi

Mílanó

Jæja, þá er ég staddur í Mílanó. Flaug hingað uppeftir á mánudaginn síðastliðin og flýg svo til baka í fyrramálið ef ekkert breytist. Annars leit þetta ekki vel út til að byrja með, búið að fresta þessu flugi vegna þoku hér í Mílanó og vegna þess að ég er svo nýr þá er ég ekki ennþá "certified" til að lenda í mikilli þoku þó að flugvélin geti það. Þess vegna var sendur annar flugmaður með en ég fékk að byrja flugið. Svo þegar til Mílanó kom þá hafði þokunni létt og ég fékk að klára flugið ;)

Daginn eftir skrapp ég svo í miðbæ Mílanó og skoða mannlífið. Var í miklum makindum að taka myndir af mjög svo fallegri kirkju þegar að afríkumaður kemur til mín og vill gefa mér gjöf frá afríku. Ég hafði nú lent í svipuðu í desember í fyrra þegar ég var hérna og þá "gaf" einn afríkubúi mér svona vinaband, en um leið og hann hafði sett bandið á mig þá byrjaði hann að sníkja af mér pening. Ég gaf honum nokkrar evrur og fékk að fara. Þannig að þegar ég var bara í róleg heitum að taka myndir þá var ég ekki að nenna neinu betli og lét eins og ég sæi ekki gaurinn. Þrátt fyrir það þá elti hann mig smá spöl og hélt áfram að bjóða mér "gjöf frá Afríku" en ég hélt áfram að látast ekki sjá hann. Loks gafst hann upp og hreyti einhverjum óyrðum í mig.

Þið verðið bara að fyrirgefa en ég hef ekki gaman að því að vera áreittur af betlurum. Finnst aðeins annað mál ef fólk er bara að spila og syngja á sínum götuhornum því það er ekki að elta mann á röndum.

En fyrir utan þetta þá er Mílanóborg alveg ágætisborg, rölta um og skoða mannlífið og flottar byggingar. Hótelið sem ég er á er reyndar í sveitinni og ekkert þar í kring nema iðnaðarhús en svo er bara spurining að næst þegar ég kem hingað að leiga bíl og skella sér í alpanna á skíði. Það væri kannski eina vitið svona yfir veturinn.

Annars er næst á dagskrá flug til Indlands á sunnudag og Karthum í Súdan á mánudag ef Allah lofar ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 08:18:16 / runaringi

Abu Dhabi

Sælt verið fólkið.

Nú er ég búinn að vera í Abu í tæpa viku og búið að vera rólegt eftir góða flugtörn fyrri hluta janúar. Er svo að fara fljúga á eftir til Mílanó þar sem ég verð fram á fimmtudagsmorgun en þá ætti ég að fljúga til baka. Annars er nú lítið í fréttum, þjálfunin gengur vel en óvíst hvenær henni líkur. Ætti svo að vera væntanlegur heim 12-13 febrúar eftir tæpa 6 vikna útiveru.... Alveg meira en nóg og vonandi verð ég ekki svona lengi úti aftur, farinn að sakna stelpnanna minna frekar mikið verð ég að segja.

Svo verð ég að monta mig smá, ákvað að koma Evu á óvart og sendi henni rósir í vinnuna ásamt upplýsingum um að hún ætti gjafabréf í Baðhúsinu. Samstarfskonur Evu voru annað hvort hringdu eða komu með maka sína til að sýna hvað Eva ætti nú góðan mann ;)

Svo var Hrafnhildur að fá einkunnir úr skólanum og að sjálfsögðu voru það glæsilegar einkunnir enda mjög klár stelpa þar á ferð :D

Bið að heilsa í snjóinn á Íslandi,

Kveðja úr sólinni í Abu :haha:

Rúnar Ingi


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:42:39 / runaringi

Árið 2008

Sælt verið fólkið og gleðilegt nýtt ár.

Ég átti alveg æðisleg jól og voru þau sérstök þar sem Við Eva og Hrafnhildur héldum okkar fyrstu jól saman. Elduðum þennan fína hrygg og tókum upp fullt af pökkum og áttum frábært kvöld.

Svo kom að því að ég yfirgaf stelpurnar mínar og hélt til Madridar í áframhaldandi línuþjálfun. Þar sem að þetta hafði gengið frekar brösulega í nóv og des gerði ég mér ekki miklar væntingar um flug þrátt fyrir góða skrá. En það rættist heldur betur og er ég núna búinn að fljúga töluvert og það er búið að ganga mjög vel.

Fór um morguninn 3. Jan frá Madrid á Spáni til Jeddah í Sádí Arabíu þar sem við fluttum 20 tonn af töskum sem pílagrímar í Mali Afríku skildu eftir.

Jeddah er athyglisverð borg og þar er ekki gott að vera kona. Hingað og þangað um borgina er sérstök trúarlögregla sem passar að konur láti ekki sjást í hár og andlit nema að takmörkuðu leyti þær séu ávallt í fylgt karlmanna. Konur mega t.d. ekki fara í lyftu með öðrum karlmönnum nema manni sínum eins og ég varð vitni af á hótelinu. Allt saman mjög sérstakt og frábrugðið því sem maður er vanur.

Flugið til Bamako í Mali tók um 8 tíma frá Jeddah og komum við rúmlega 4 um morguninn á áfangastað. Sérstök upplifun að keyra í gegnum Bamako þar sem allt er frekar frumstætt og ekki eins og maður er vanur. Hótelið var reyndar mjög gott og mér skilst að það gerist varla betra í Afríku. Mjög vinalegt og gott fólk og ég hefði alveg getað hugsað mér að vera þarna einum degi lengur.

En um kvöldið var kominn tími að leggja af stað til Tripoli í Lýbíu þar sem við stoppuðum og fylltum vélina af eldsneyti. Eldsneyti er mjög ódýrt þarna í Lýbíu þar sem þeir eiga mikla olíu. Stoppið var um 2 tímar en þá héldum við áfram til Chateauroux í Frakklandi þar sem ég er staddur núna. Á morgun er ferðinni svo haldið til Abu Dhabi þar sem ég verð í 2 daga.

Annars gengur flugið vel og ég læt vita hvernig framhaldið verður.

 Bestu Kveðjur,

Rúnar Ingi


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 13:38:44 / runaringi

París

Jæja, hvar skal byrja, ég er ekki alveg klár á því sjálfur.....

Alla vega þá er ég staddur í París núna og hef lokið mínu fyrsta flugi, gaman gaman. Það var frá Abu Dhabi til Mílanó og gekk bara mjög vel. Þetta var sunnudaginn 9. desember og átti ég að fljúga til baka snemma á fimmtudags morgni en vegna verkfalla þá var hætt við það flug. Þar á eftir átti ég að fljúga til Abu á laugardeginum en það var hætt við það flug líka. Etihad á það til að breyta flugum hingað og þangað og ekkert við því að gera.

 En að lokum var ég sendur til Parísar til að fljúga þaðan og til nokkra staða í Afríku á laugardags morgni og átti ég að gista 2 nætur í Nockchott sem er í Maritaniu í vestur Afríku. En vegna óviðráðanlegra orsaka breytist það líka þannig að ég fór með Air France sem farþegi til Nockchott til þess að fljúga til Parísar en svo þegar við komum niður eftir þá var búið að hætta við það flug svo ég fór með sömu vél til baka.

En svona er bara þessi starfsemi, alltaf verið að breyta og erfitt að eiga við þetta. Þolinmæði þrautir vinnur allar og vonandi rætist bara úr þessu.

Annars er ég væntanlegur heim á fimmtudag og það verður gott að koma heim og eyða jólunum í rólegheitum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 16:04:50 / runaringi

Abu Dhabi

Jæja þá er maður loksins kominn til Abu. Setti persónulegt met þegar ég "heimsótti" 5 Evrópulönd á rúmri viku. Fór reyndar varla út fyrir flugvöllinn í 3 þeirra þannig að það telur ekki alveg.

Ennþá lítur út fyrir að ég komi heim um jólin sem er bara frábært en fer því miður út rétt fyrir áramót. Þrátt fyrir að ég sé í múslima ríki þá er samt búið að skreyta bæinn aðeins og í mall-inu er búið að búa til svona jóla uppstillingu með risa jólatré og jólasveininum og þ.h. Halda greinilega smá upp á jólin hérna, eins eru spiluð jólalög í hátalarkerfi hótelsins sem er bara cool.

Hef svosem ekkert frá gríðarlega mikla að segja í viðbót þannig að ég bið bara að heilsa.

Rúnar Ingi


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 11:28:15 / runaringi

Madrid

Jæja gott fólk.
Hér er ég þá staddur í Madrid, átti fyrst bara ad vera hér þangad til í gær en ennþá er ekkert laust herbergi á hótelinu í Abu Dhabi. Þannig ad hér skal ég dúsa til 5. eda 7. desember. En svona er víst flugmanns lífid hjá Atlanta, allt getur breyst og madur verdur bara ad lifa med því.
Er staddur á internet kaffi í svona smáhverfi rétt hjá hótelinu. Hótelid er ágætt og er betra stadsett en hótelid sem ég var fyrst á. En eins og planid lítur út núna þá eru líkur á því ad ég komi heim yfir jólin en fari út aftur fyrir áramót. Vonum bara ad þad breytist ekki svo ég verdi allavega heima yfir jólin ;)
Annars bid ég bara kærlega ad heilsa ykkur.
Ástar og saknadarkvedjur til Evu og Hrafnhildar, jú og eitthvad smá til ykkar hinna :lol:
 Adios

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 16:54:49 / runaringi

Italia

Hallo,

Er staddur i Milano tessa stundina og atti ad fara med vel fra okkur til Abu en svo hefur komid i ljos ad ekki er til hotelherbergi fyrir mig fyrr en i desember. Tannig ad eg er ad fara til Parisar a morgun til ad fara med vel til Madridar og a tridjudaginn fer eg svo med velinni til Kanari eyja og til baka. A svo ad fara til Abu i lok november og byrja ad fljuga min fyrstu flug.

For i finan gongutur i dag i litinn smabae sem heitir Oleggio skemmtileg hus og trongar gotur. Ratadi svo inn i messu i tetta lika rosa storu og flottu kirkju.

En annars bara gott ad fretta.

 Bid ad heilsa

 

Kv Runar Ingi


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 20:58:43 / runaringi

Heima er BEST

Jæja þá er ég kominn heim og mikið er það gott ;)

 Hef lokið svokallaðri Base Training og lauk ég henni með 6 lendingum á Airbus 300-600 á alþjóðaflugvellinum í Abu Dhabi. Næst þegar ég fer út þá hef ég svokallaða línu þjálfun eða "line training" þar sem ég verð með þjálfunarflugstjórum að fljúga venjuleg flug með frakt.

 Hérna er svo mynd af vélinni sem ég tók lendingarnar á. Til viðmiðunar þá er neðri hlutinn af mótornum í axlahæð á mér ;)

Airbus 300-600 TF-ELF


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 13:26:48 / runaringi

Abu Dhabi

Jæja þá er maður kominn til Abu Dhabi. Það er dálítið öðrivísi menning hérna verð ég að segja, og rólegur hvað þessir gaurar eru framkvæmdarglaðir. Nánast hvert sem litið er þá eru byggingakrana að sjá og þetta er frekar nútímaleg og flott borg.

Skrapp í mallið og það er ekki að verri endanum og verðið er oftast mjög ódýrt miðað við annars staðar.

Ég fer líklega í flug á morgun þar sem ég bara að fylgjast með en það er frá Abu Dhabi til Mílanó á Ítalíu og til baka, svo ef að allt gengur samkvæmt áætlun fer ég í lendingar þriðjuaginn 13. nóv og heim 14 eða 15 nóv.

Bestu kveðjur frá Abu Dhabi

 Rúnar Ingi


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 11:59:09 / runaringi

Abu Dhabi

Jæja, þá er komið að því. Lokapróf í flugherminum er kl 18:15 í dag. Þjálfun hefur gengið vel og er ég bjartsýnn á jákvæða niðurstöðu.

Svo hefur ferðaplanið breyst, upphaflega átti ég að koma heim á morgun en í staðinn er ég að fara til Abu Dhabi. Þar fer í eitt "observe" flug þar sem ég fylgist með hvernig á að fljúga þessu apparati og 13. nóvember framkvæmi ég svo 6 lendingar og með þeim hef ég þá klárað svokallaða "base training" áætlaður ferðadagur til Íslands er svo 14 eða 15 nóvember.

Annars bara góða kveðjur til ykkar heima.

 

Kv Rúnar Þotuflugmaður ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 13:14:35 / runaringi

Frakkar og verkfall

Hvað er málið með þessa frakka og verkföll, alveg ótrúlegt hvað þeir fara oft í verkfall á ári. Um það leyti sem ég fór út þá lágu almenningssamgöngur niðrir vegna verkfalla og ekki alls fyrir löngu fóru flutningabílstjórar í verkfall og teppuðu alla umferð. Tók eftir þessu á mánudagskvöldið þegar ég var að fara í kassan, haugur af flutningabílum á hraðbrautinni og voru ekkert að flýta sér. Svo eru flugfreyjur á Air France í verkfalli núna og allt brjálað. Verkföll, þjóðaríþrótt Frakka.

Annars kengur þjálfuninn vel, þrátt fyrir að það er mikið nýtt sem ég þarf að læra og muna að gera á réttum tímapunkti. Er núna hálfnaður með þjálfunina og lokaprófið er 8. nóv svo kem ég heim 9. nóv.

Bið að heilsa á klakan.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 24018
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1202 dögum
göngum við Eva í það heilaga
Tenglar